Blogg einu sinni mánuđi greinilega ;)
Ég ætla mér greinilega að blogga einu sinni í mánuði eða svo....;) Það er ekki svo slæmt er það nokkuð?;) Allavega ekkert neitt merkilegt að gerast hjá mér þessa dagana nema skóli, skóli, skóli. Fékk nú að vera heima í veikindafríi með litla gaurnum og ég held að ég hafi aldrei verið eins dugleg að læra enda eru takmörk fyrir því hvað ég nenni að horfa á sömu teiknimyndina aftur og aftur. En það er samt voða sætt að fylgjast með Kristjáni hlæja alltaf á nákvæmlega sömu stöðunum í teiknimyndinni aftur og aftur:)
Ég er ekkert sérstaklega dugleg í skemmtanalífinu þessa dagana enda nóg að gera en mér tókst nú samt að fara á eitt alveg óvart djamm þar sem ég var í Singstar partýi með fjölskyldunni og þurfti smá söngvatn til að kjarka mig upp og svo endaði ég nú bara með henni Þórey minni og Krístinu Helgu og Co á einum rómaðasta skemmtistaði úthverfanna.....Players ;) Ég og Þórey vorum síðan voða góðar (gamlar;)) stelpur og fórum snemma heim ( 4 ) og lentum á svo (ó)skemmtilegum leigubílsstjóra sem talaði alla (löngu)leiðina heim og endaði á að villast ( af þvi að hann talaði svo mikið!;)) og þurfti að gefa mér afslátt vegna ruglingsins. 
Jæja svona er þetta bara en hlakka til að fara í jólafrí og er farin að láta mig dreyma dagdrauma um hvernig ég ætla að skreyta litlu sætu íbúðina...já já ég á ekkert líf
. Ég þarf reyndar að pæla í öllu svona jóladóti núna því að ég á ekki eftir að hafa tíma til þess á næstunni en verknám á bæklunarskurðdeild er á næsta leyti og svo eru prófin og ég ætla sko að vera búin að versla jólagjafir (helmingurinn búinn
) og gera jólakort og kaupa skreytingadót...blablablabla
Jæja búin í bili þangað til næst
Hildur Jóla, jóla, jóla.....
3 athugasemdir
